Fara í vöruupplýsingar
1 af 2

knits.by.linda

Peysan hans Steina - fullorðins

Venjulegt verð 1.050 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.050 ISK
Útsala Uppselt

Hér kemur fullorðins útgáfan af peysunni hans Steina. Peysunni sem á svo skemmtilega sögu því í fyrrasumar (2024) áskotnuðust manninum mínum svo dásamlegar, gamlar myndir. Þær voru flestar af honum og þar á meðal var ein, sennilega tekin sumarið 1974 þegar hann var tveggja ára og hann er á myndinni í svo fallegri heimaprjónaðri peysu sem prjónuð var af fingrum fram af mömmu hans. Ég fékk strax hugmynd að endurgera og nútímavæða þessa barnapeysu með nýrri uppskrift, nefna hana peysuna hans Steina í höfuðið á honum og svo að búa líka til fullorðins útgáfu þannig að allir geti notið þess að vera í peysunni hans Steina. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með laskaútaukningu. Einfalt mynstur á berustykki, neðst á bol og ermum. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar. 

Stærðir: XXS (XS) S (M) L (XL) 2XL (3XL).
Yfirvídd: ca. 97 (101) 105 (109) 116 (122) 128 (135) cm.
Garn: Knitting for Olive Heavy Merino. (50 g = 125 m). Einn aðallitur og einn mynsturlitur. Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn:
Aðallitur: 300 (350) 400 (400) 450 (450) 500 (500) g.
Mynsturlitur: 100 (100) 150 (150) 150 (150) 200 (200) g. 
Prjónar: 5 mm hringprjónar og sokkaprjónar.
Prjónfesta: 19/10 (19 lykkjur á 10 cm) slétt prjón.

 

Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.