Fara í vöruupplýsingar
1 af 4

knits.by.linda

Lukka sumarpeysa

Venjulegt verð 1.050 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.050 ISK
Útsala Uppselt

Lukka. Þessi peysa getur ekki fengið neitt annað nafn. Það gekk á ýmsu hjá mér við hönnun á henni, ekki bara að ég rakti hana upp þrisvar sinnum og byrjaði upp á nýtt heldur tókst mér líka að hella yfir hana heilum bolla af kaffi. Þannig að þetta hlýtur að vera lukkupeysa. En hvað um það, hér er hún mætt og ég gæti ekki verið ánægðari með hana. Lukka er prjónuð ofan frá og niður, í hring með tveimur þráðum en bara einum í einu. Röndótt og mynstruð með stuttum ermum. Fullkomin fyrir sumarið. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL (4XL).
Garn: Peysan er prjónuð úr tveimur þráðum, en bara einum í einu.
Í fyrsta lagi Haya frá Holst (50 g = 183 m) sem er aðalþráður og síðan Soft Silk Mohair frá Knitting for Olive (25 g = 225 m) sem er notað í rendurnar. Garnið fæst hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn:
150 (200) 200 (200) 200 (250) 250 (300) g af Haya,
25 (25) 50 (50) 50 (50) 50 (75) g af Soft Silk Mohair.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar.
Prjónfesta: 22/10 slétt prjón á 4 mm prjóna (22 lykkjur á 10 cm).
Yfirvídd: ca. 90 (97) 102 (109) 116 (121) 128 (135) cm.

 

Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.