knits.by.linda
Litli skipperinn húfa no. 1
Litli skipperinn húfa no. 1 er krúttleg, þægileg og smellpassar með Litla skipper heilgallanum. Mynstrið sem er frekar einfalt, samanstendur aðeins af sléttum og brugðum lykkjum. Ég mæli með að lesa uppskriftina yfir áður en þið byrjið.
Stærðir: 0 – 3 mán (3 – 6 mán) 6 – 9 mán (9 – 12 mán) 12 – 18 mán.
Garn: POP merino frá Hipknit shop. (50 g = 115 m). POP merino fæst hjá Guðrúnu Ólöfu (gudrunolof.com) og Garnbúð Eddu.
Garnmagn: 50 (50) 50 (50) 50 g.
Prjónar: 4 mm lítill hringprjónn og/eða sokkaprjónar. Gott að nota 3/3,5 mm prjóna í snúrur.
Ummál: ca. 27 (30) 33 (35) 38 cm.
Prjónfesta: 22/10, slétt prjón á 4 mm prjóna en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestuna aðeins.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.