knits.by.linda
Litli skipperinn - heilgalli
Skipperinn og Litli skipperinn eru mínar allra vinsælustu uppskriftir frá upphafi, enda ferlega skemmtilegar, bæði gaman að prjóna þær og fallegar peysurnar sem verða til. Ég er búin að ganga með það í maganum nokkuð lengi að búa til uppskrift að heilgalla í sama stíl og lét loksins verða af því. Gallinn er prjónaður frá hálsmáli og niður, fram og til baka niður eftir bol en síðan er tengt í hring. Hann er með laskaútaukningum og mynstri alla leið niður skálmar og einnig á ermum. Ég mæli með að lesa uppskriftina yfir áður en þið byrjið.
Stærðir: 0 – 3 mán (3 – 6 mán) 6 – 9 mán (9 – 12 mán) 12 – 18 mán
Yfirvídd: ca. 52 (54) 57 (60) 65 cm.
Garn: POP merino frá Hip Knit Shop. (50 g = 115 m). Fæst hjá Guðrúnu Ólöfu (www.gudrunolof.com) og Garnbúð Eddu. Einnig er hægt að nota Lang merino120, Dale merino 22 og Drops Daisy. Athugið bara að metralengd á dokkum getur verið misjöfn eftir tegundum.
Garnmagn: 200 (250) 300 (350) 350 g.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar og 3,5 mm hringprjónn í tölu- og hnappagatalista.
Prjónfesta: 22/10 slétt prjón á 4 mm prjóna en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestu aðeins og hún er nær 23/10 með mynsturprjóninu og yfirvíddin á gallanum er reiknuð samkvæmt því.
Tölur: 5 (5) 5 (6) 7 stk.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.