Fara í vöruupplýsingar
1 af 3

knits.by.linda

Lerki peysa

Venjulegt verð 950 ISK
Venjulegt verð Söluverð 950 ISK
Útsala Uppselt

Lerki peysan er hluti af Lerki línunni sem byrjaði með einum heilgalla, þegar vinkona mín bað mig um að prjónaheimferðarsett fyrir komandi ömmubarn. Síðan varð þessi peysa til, buxur og tvær húfur.
Peysan er hneppt, prjónuð frá hálsmáli og niður, fram og til baka. Hún er með laskaútaukningum og mynstri á berustykki, bol og einnig á ermum. Ermarnar eru beinar og teknar saman með stroffi. Mynstrið, sem kallast tvöfalt Andalúsíuprjón, samanstendur aðeins af sléttum og brugðum lykkjum. Mynstrið ,sem er frekar einfalt, er síendurtekið og myndar skemmtilega heild. Ég mæli með að lesa uppskriftina yfir áður en þið byrjið.

Stærðir0–3 mán (3–6 mán) 6–9 mán (9–12 mán) 12–18 mán (2 ára) 3 ára (4 ára) 5 ára
Yfirvídd: ca. 49 (52) 57 (60) 65 (68) 71 (74) 76 cm.
Garn: Merino 120 frá LANG. (50 g = 120 m).
LANG garnið fæst hjá Garn í gangi á Akureyri. Einnig er hægt að nota t.d. Duo frá Sandnes, Lerke frá Dale og Merino extra fine frá Drops sem hafa öll svipaða prjónfestu. Athugið bara að það getur verið misjafn metrafjöldi á 50 g dokkum.
Garnmagn: 150 (150) 200 (200) 250 (250) 300 (300) 350 g.
Prjónar: hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4 og hringprjónn nr. 3,5 í tölu- og hnappagatalista.
Prjónfesta: 22/10 á prjóna nr. 4 en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestuna aðeins.
Tölur: 5 (5) 5 (6) 6 (6) 7 (7) 8 stk.

Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.