knits.by.linda
Lerki kjusa
Lerki kjusa er krúttleg húfa með eyrum fyrir þau allra minnstu og sama mynstri sem er á Lerki heilgallanum. Mynstrið, sem kallast tvöfalt Andalúsíuprjón, samanstendur aðeins af sléttum og brugðum lykkjum. Mynstrið, sem er frekar einfalt, er síendurtekið og myndar skemmtilega heild. Ég mæli með að lesa uppskriftina yfir áður en þið byrjið.
Stærðir: 0 – 3 mán (3 – 6 mán) 6 – 9 mán (9 – 12 mán) 12 – 18 mán
Garn: Merino 120 frá LANG. (50 g = 120 m).
Garnmagn: 50 (50) 50 (50) 50 g.
Prjónar: hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4.
Prjónfesta: 22/10, slétt prjón á prjóna nr. 4 en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestuna aðeins.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.