knits.by.linda
Lerki heilgalli og Lerki kjusa
Í vetur sem leið (2021 – 2022) bað vinkona mín mig um að prjóna galla sem heimferðarföt fyrir væntanlegt barnabarn. Ég prjónaði fyrir hana galla og litla kjusu með og skrifaði um leið niður hjá mér uppskriftirnar sem síðan hafa velkst um í huganum á mér og tekið ýmsum breytingum en hér er lokaútkoman af þeirri vinnu. Mynstrið, sem kallast tvöfalt Andalúsíuprjón, samanstendur aðeins af sléttum og brugðum lykkjum. Mynstrið sem er frekar einfalt er síendurtekið og myndar skemmtilega heild. Ég mæli með að lesa uppskriftirnar yfir áður en þið byrjið.
Stærðir: 0–3 mán (3–6 mán) 6–9 mán (9–12 mán) 12–18 mán
Garn: Merino 120 frá LANG. (50 g = 120 m).
Garnmagn: 250 (300) 350 (400) 400 g í bæði gallann og kjusuna.
Lerki heilgalli
Stærðir: 0–3 mán (3–6 mán) 6–9 mán (9–12 mán) 12–18 mán
Yfirvídd: ca. 50 (52) 57 (60) 65 cm.
Garn: Merino 120 frá LANG. (50 g = 120 m).
Garnmagn: 250 (250) 300 (350) 400 g.
Prjónar: hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4 og hringprjónn nr. 3,5 í tölu- og hnappagatalista.
Prjónfesta: 22/10 slétt prjón á prjóna nr. 4 en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestu aðeins og hún er nær 23/10 með mynsturprjóninu og yfirvíddin á gallanum er reiknuð samkvæmt því.
Tölur: 5 (5) 5 (6) 7 stk.
Lerki kjusa
Stærðir: 0 – 3 mán (3 – 6 mán) 6 – 9 mán (9 – 12 mán) 12 – 18 mán
Garn: Merino 120 frá LANG. (50 g = 120 m).
Garnmagn: 50 (50) 50 (50) 50 g.
Prjónar: hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4.
Prjónfesta: 22/10, slétt prjón á prjóna nr. 4 en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestuna aðeins.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.