knits.by.linda
Gullið mitt - peysa
Venjulegt verð
950 ISK
Venjulegt verð
Söluverð
950 ISK
Einingaverð
á
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningu og mynstri á framhliðum og baki. Ermar prjónaðar slétt. Tölu- og hnappagatalistar eru prjónaðir eftir á. Peysan er eins og peysan í heimferðarsettinu Gullið mitt, bara í stærri stærðum og prjónuð úr grófara garni og því fullkomin fyrir eldri systkini. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar
Stærðir: 6 – 9 mán (1 árs) 2 ára (3 ára) 4 ára (5 ára) 6 ára (7 - 8 ára)
Yfirvídd: ca. 55 (60) 64 (68) 68 (72) 72 (76) cm
Garn: Pernilla frá Filcolana (50 g = 175 m).
Garnmagn: 100 (100) 150 (150) 200 (200) 200 (250) g.
Prjónar: hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4. Hringprjónar nr. 3,5 í tölu- og hnappagatalista. Prjónfesta: 24/10 slétt prjón á prjóna nr. 4.
Tölur: 5 (5) 5 (6) 6 (6) 7 (7) stk.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.