knits.by.linda
Gullið mitt - kjóll
Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður, með laskaútaukningum, kvartermum og mynstri á pilsi. Berustykki og ermar eru slétt en mynstrið á pilsi neðan erma er það sama og er á Gullið mitt ungbarnasettinu og Gullið mitt peysunni. Í fyrstu er kjóllinn prjónaður fram og til baka en síðan er tengt í hring. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.
Stærðir: 3 mán (6 mán) 1 árs (2 ára) 3 ára (4 ára) 6 ára (8 ára)
Garn: Mal. handlitað garn frá Sigrúnu Maríu (100 g = 365 m) fæst hjá www.malband.is og Storkinum en athugið að það kemur í 100 g hespum. Einnig er hægt að nota merinoull frá Knitting for Olive (50 g = 250 m).
Garnmagn: 100 (200) 200 (200) 200 (300) 300 (400) g af Mal. eða
100 (100) 150 (150) 200 (200) 250 (250) g ef notað er Knitting for Olive merino.
Prjónar: Hringprjónar og sokkaprjónar nr 3.
Prjónfesta: 28/10 slétt prjón á prjóna nr 3.
Yfirvídd: ca. 43 (49) 51 (54) 57 (60) 66 (69) cm. Yfirvíddin er miðuð við prjónfestu 28/10 af sléttu prjóni og mæld rétt fyrir neðan ermar, áður en byrjað er á pilsinu.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.