Fara í vöruupplýsingar
1 af 3

knits.by.linda

Granít peysa

Venjulegt verð 950 ISK
Venjulegt verð Söluverð 950 ISK
Útsala Uppselt
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningu og mynstri á búk
neðan erma. Ermar eru prjónaðar slétt. Mynstrið er prjónað með svokölluðu granít mynstri
(e. granite stitch) og það er betra að prjóna það á 1⁄2 nr stærri prjóna því það kippir sér aðeins
inn. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.

Stærðir: 6 – 12 mán (1 árs) 2 ára (3 ára) 4 ára (5 ára) 6 – 7 ára (8 – 10 ára)
Garn: Duo frá Sandnes (50 g = 115 m).
Garnmagn: 150 (200) 200 (200) 250 (250) 300 (350) g.
Prjónar: Hringprjónar og sokkaprjónar nr 4. Hringprjónar nr. 4,5 í mynstur. Prjónar nr. 3,5 í tölu – og hnappagatalista.
Prjónfesta: 22/10 slétt prjón á prjóna nr 4.
Tölur: 5 (5) 5 (6) 6 (6) 7 (7) stk.
Yfirvídd: ca. 55 (59) 61 (63) 65 (66) 70 (75) cm
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.