knits.by.linda
Esja - húfa
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Esja húfa er fullkomin með peysunni. Prjónuð í hring með styttum umferðum í byrjun til að móta eyrnaleppa. Sama mynstur og á peysunni, samsett úr sléttum og brugðnum lykkjum. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.
Stærðir: 1 árs (2-3 ára) 4-5 ára.
Garn: Mashdale frá Filcolana (50 g = 125 m). Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn: 50 (50) 100 g.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar.
Prjónfesta: 22/10 slétt prjón (22 lykkjur á 10 cm) á 4 mm prjóna.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.

