knits.by.linda
Stellu gollan
Stellu gollan er hneppt peysa fyrir börn með sama mynstri og í Stellu ungbarnasettinu. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningu og gatamynstri á bol neðan erma. Ermar eru prjónaðar slétt. Tölu- og hnappagatalistar eru prjónaðir samhliða og uppskrift gerir ráð fyrir 3 – 4 tölum á berustykki. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.
Stærðir: 1 árs (2 ára) 3 ára (4 ára) 5 ára (6 ára) 7 – 8 ára.
Yfirvídd: ca. 62 (65) 66 (70) 72 (75) 78 cm, mæld fyrir neðan ermar en fyrir ofan mynstur.
Garn: Pernilla frá Filcolana (50 g = 175 m).
Garnmagn: 150 (150) 150 (200) 200 (200) 250 g.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar.
Prjónfesta: 24/10 slétt prjón.
Tölur: 3 – 4 stk eftir stærð peysu.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.