knits.by.linda
Sláin hennar Diddu
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Mig hefur lengi langað að búa til uppskrift að sjali og er búin að byrja oft á slíkri uppskrift – en einhvers staðar á leiðinni breyttist sjalið í slá. Þetta poncho eða slá er afraksturinn af þeirri vinnu. Sláin er prjónuð fram og til baka með fallegu gatamynstri. Á milli mynstra eru sléttar umferðir. Í lokin eru prjónaðir kantar og stykkið síðan prjónað saman til að mynda hálsmál. Ég mæli með að lesa uppskriftina yfir áður en þið byrjið.
Stærðir: Ein stærð. Hjá mér endaði það um það bil 55 cm á breiddd og 150 cm á lengd.
Garn: Það er hægt að nota hvaða garn sem er. Ég notaði garn sem ég átti frá því í fyrstu prjónaferðinni minni til Fanø sem er 50% yak og 50% silki frá A Knitters World. Það er gefið upp fyrir 3 - 4 mm prjóna og prjónfestu 24 – 26. Ég sé fyrir mér að hún yrði ótrúlega falleg úr fingering handlituðu garni.
Garnmagn: 800 m.
Prjónar: 5 mm og 4,5 mm hringprjónar.
Prjónfesta: 20/10 slétt prjón á 5 mm prjóna (20 lykkjur á 10 cm).
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.

