Fara í vöruupplýsingar
1 af 4

knits.by.linda

Ópal kjóll

Venjulegt verð 950 ISK
Venjulegt verð Söluverð 950 ISK
Útsala Uppselt

Ópal kjóllinn er í flokki með Tópas peysunni og ungbarnasettinu þar sem nokkur mismundandi mynstur eru prjónuð á berustykki. Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður, með hringútaukningum og mynstrum á berustykki sem eru bæði samsett úr sléttum og brugðnum lykkjum og gatamynstri. Pilsið er prjónað slétt og kjóllinn er með stuttum ermum. Í fyrstu er kjóllinn prjónaður fram og til baka en síðan er tengt í hring. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.

Stærðir: 3 mán (6 mán) 1 árs (2 ára) 3 ára (4 ára) 5 – 6 ára.
Garn: Fínerí frá Eddu í Garnbúð Eddu. 100 g = 400 m. 
Garnmagn: 100 (100) 150 (150) 150 (200) 200 g.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar. Heklunál nr. 3 til að hekla lykkju í hálsmáli.
Prjónfesta: 24/10 (24 lykkjur á 10 cm) slétt prjón á 4 mm prjóna.
Yfirvídd: ca. 48 (52) 55 (58) 63 (67) 70 cm. Mælt fyrir neðan hendur áður en aukið er út í pilsi.
Tölur: 1 stk. fyrir allar stærðir.


Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.