knits.by.linda
Lerki peysa og húfa
Lerki peysan og húfa eru hluti af Lerki línunni sem byrjaði með einum heilgalla, þegar vinkona mín bað mig um að prjónaheimferðarsett fyrir komandi ömmubarn. Síðan urðu peysan, buxurnar og húfurnar tvær til. Mynstrið, sem kallast tvöfalt Andalúsíuprjón, samanstendur aðeins af sléttum og brugðum lykkjum. Það er frekar einfalt, er síendurtekið og myndar þannig skemmtilega heild. Ég mæli með að lesa hvora uppskrift fyrir sig yfir áður en þið byrjið.
Stærðir: 0–3 mán (3–6 mán) 6–9 mán (9–12 mán) 12–18 mán (2 ára) 3 ára (4 ára) 5 ára
Garn: Merino 120 frá LANG. (50 g = 120 m).
LANG garnið fæst hjá Garn í gangi á Akureyri. Einnig er hægt að nota t.d. Duo frá Sandnes, Lerke frá Dale og Merino extra fine frá Drops sem hafa öll svipaða prjónfestu. Athugið bara að það getur verið misjafn metrafjöldi á 50 g dokkum.
Garnmagn: 150 (200) 250 (250) 300 (300) 350 (400) 400 g í hvoru tveggja.
Prjónar: hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4. Prjónar nr. 3/3,5 fyrir snúru.
Prjónfesta: 22/10, slétt prjón á prjóna nr. 4 en athugið að endurtekið prjón með sléttum og brugðnum lykkjum getur skekkt prjónfestuna aðeins.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.