Fara í vöruupplýsingar
1 af 4

knits.by.linda

Gormur jakkapeysa

Venjulegt verð 950 ISK
Venjulegt verð Söluverð 950 ISK
Útsala Uppselt

Gormur jakkapeysa er opin útgáfa af peysunni Gormi sem kom út í febrúar 2022. Eftir að sú uppskrift kom út fékk ég fjölmargar fyrirspurnir um hvort ég gæti ekki búið til uppskrift af opnum og hnepptum Gormi og ég er búin að vera með það á verkefnalistanum og á bak við eyrað síðan. En hér er hún tilbúin, með öðruvísi hálsmáli en gengur og gerist, svokölluðum sjal kraga (e. Shawl collar) og hneppt fyrir neðan hann. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningum, v- hálsmáli og sjalkraga ásamt tölu- og hnappagatalista. Einfalt mynstur á bol sem samanstendur af sléttum og brugðnum lykkjum. Ég mæli með að lesa uppskriftina yfir í heild áður en þú byrjar. 

Stærðir: 6 – 9 mán (1 árs) 2 ára (3 ára) 4 ára (5 ára) 6 ára (7 ára) 8 ára (10 ára)
Yfirvídd: ca. 59 (62) 65 (69) 73 (76) 81 (84) 86 (90) cm, fullkláruð með tölulista.
Garn: Sandnes Double Sunday (50 g = 108 m).
Garnmagn: 200 (200) 250 (250) 300 (300) 350 (350) 400 (450) g.
Prjónar: 5 mm hringprjónar og sokkaprjónar og 4,5 mm hringprjónn í lista.
Prjónfesta: 20/10 slétt prjón.
Tölur: 4 (4) 4 (5) 5 (5) 5 (6) 6 (6) stk.

Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.