Fara í vöruupplýsingar
1 af 5

knits.by.linda

Esja - ungbarnasett

Venjulegt verð 1.550 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.550 ISK
Útsala Uppselt

Esja ungbarnasettið samanstendur af peysu, buxum og húfu. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningum. Tölu- og hnappagatalistar eru prjónaðir eftir á. Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með upphækkun að aftan fyrir litla bossa. Húfan er þessi venjulega hjálmhúfa. Á öllu er einfalt en fallegt mynstur, samsett úr sléttum og brugðnum lykkjum.

Stærðir: fyrirburi (0 – 3 mán) 3 – 6 mán (6 – 9 mán).
Garn: Merinoull frá Knitting for Olive (50 g = 250 m). Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn: 150 (150) 150 (150) g í allt settið.
Prjónar: 3 mm hringprjónar og sokkaprjónar. 2,5 mm prjónar í tölu – og hnappagatalista á peysu.
Prjónfesta: 28/10 slétt prjón (28 lykkjur á 10 cm) á 3 mm prjóna.

 

Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.