knits.by.linda
Esja - hneppt barnapeysa og húfa
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Esju peysan er dásamleg fyrir öll börn, mátulega þykk og hlý. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningu og með mynstri samsettu úr sléttum og brugðnum lykkjum. Tölu- og hnappagatalistar eru prjónaðir eftir á. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.
Stærðir: 1 árs (2 ára) 3 ára (4 ára) 5 ára (6 ára) 7-8 ára (9-10 ára).
Yfirvídd: ca. 60 (64) 66 (70) 73 (75) 79 (84) cm.
Garn: Mashdale frá Filcolana (50 g = 125 m). Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn: 150 (200) 200 (250) 250 (300) 350 (350) g.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar, 3,5 mm hringprjónar í tölu- og hnappagatalista.
Prjónfesta: 22/10 (22 lykkjur á 10 cm) slétt prjón á 4 mm prjóna.
Tölur: 5 (5) 6 (6) 7 (7) 7 (8) stk.
Esja húfa er fullkomin með peysunni. Prjónuð í hring með styttum umferðum í byrjun til að móta eyrnaleppa. Sama mynstur og á peysunni, samsett úr sléttum og brugðnum lykkjum. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.
Stærðir: 1 árs (2-3 ára) 4-5 ára.
Garn: Mashdale frá Filcolana (50 g = 125 m). Fæst hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn: 50 (50) 100 g.
Prjónar: 4 mm hringprjónar og sokkaprjónar.
Prjónfesta: 22/10 slétt prjón (22 lykkjur á 10 cm) á 4 mm prjóna.
Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.

