Fara í vöruupplýsingar
1 af 3

knits.by.linda

Björk - hneppt dömupeysa

Venjulegt verð 1.050 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.050 ISK
Útsala Uppselt

Gollan Björk er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningum. Sniðið er stutt, beint og aðeins vítt, ermar niður að olnbogum. Fullkomin yfir skyrtur eða kjóla. Einföld, stílhrein og sparileg. Hneppt að framan með þremur tölum. Ég mæli með að lesa yfir uppskriftina í heild áður en þú byrjar.

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL. 
Garn: Peysan er prjónuð úr tveimur þráðum saman, annars vegar Mohair Edition Recy frá Edy Angola (50 g = 165 m) og hins vegar Titicaca frá Holst (50 g = 400 m) en einnig er hægt að nota Alpakka Følgetråd frá Sandnes (50 g = 400m) sem er sambærilegt.  Mohair Edition Recy og Titicaca fást hjá Garn í gangi á Akureyri.
Garnmagn: 250 (250) 250 (250) 300 (300) 350 g af Mohair Edition og 100 (100) 100 (100) 150 (150) 150 g af Titicaca eða Alpakka Følgetråd.
Prjónar: 5 mm hringprjónar og 4,5 mm hringprjónn fyrir lista.
Prjónfesta: 18/10 (18 lykkjur á 10 cm) slétt prjón á 5 mm prjóna. 
Yfirvídd: ca. 99 (104) 109 (112) 116 (121) 125 cm. 
Tölur: 3 stk. fyrir allar stærðir.

Allar uppskriftir eru sendar rafrænt (PDF) á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur verið framkvæmd. Hægt er að hlaða skjalinu niður 3 sinnum áður en hlekkurinn verður óvirkur. Ég mæli með að vista uppskriftina á góðum stað.